Flýtileiðir á vef Háskóla Íslands:


Flýtileiðir:

Fara efst a siðu

Spurning af vísindavef:

Fara efst a siðu
Vísindavefurinn
Hverjar eru höfuðborgir Suður-Afríku?


Innskráning í Uglu:



Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun ESB (CIP). Áætlunin varir frá 2007-2013 og er ætlað að hlúa betur að litlum og meðalstórum fyrirtækjum og ýta þannig undir aukna samkeppnishæfni og nýsköpun í álfunni. Áætlunin byggir á mörgum eldri áætlunum ESB sem hefur verið steypt saman í eitt undir þessum málaflokki með það að markmiði að styrkja enn betur stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Evrópu.

Evrópumiðstöð aðstoðar íslensk fyrirtæki við að komast í Evrópusamstarf. Hlutverk Evrópumiðstöðvar Impru er að koma á samstarfi milli íslenskra og evrópskra fyrirtækja, háskóla og eða rannsóknaraðila og stuðla þannig að aukinni tækninýtingu og þekkingu til þess að efla samkeppnishæfni og nýsköpun. Evrópumiðstöð Impru er hluti samstarfsnets 550 miðstöðva sem starfa á vegum Evrópusambandsins í yfir 40 löndum. Evrópumiðstöð Impru tekur einnig þátt í ýmsum Evrópuverkefnum og veitir fyrirtækjum aðstoð og upplýsingar um styrkveitingar Evrópusambandsins undir Nýsköpunar- og samskeppnisáætluninni (CIP).

Nánari upplýsingar hjá Evrópumiðstöð Impru á NýsköpunarmiðstöðÍslands.


Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB annast framkvæmd áætlunarinnar hérlendis. Háskóli Íslands sér um rekstur Landskrifstofunnar og annast Rannsóknaþjónusta HÍ umsjón Leonardó áætlunarinnar en Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins annast umsjón Comenius, Erasmus og Grundtvig áætlananna.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB

 

Landskrifstofa eTwinning, áætlunar ESB um rafrænt skólasamstarf
eTwinning heyrir undir Menntaáætlun ESB og snýr að leik-, grunn- og framhaldsskólum. Landskrifstofan annast framkvæmd áætlunarinnar og veitir skólum og kennurum stuðning og þjónusta. Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins, Háskóla Íslands, sér um rekstur Landskrifstofunnar.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Landskrifstofu eTwinning á Íslandi


Rannís - Rannsóknamiðstöð Íslands

Rannís stuðlar að þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi á sviði rannsókna og þróunar.  Rannís veitir upplýsingar og ráðgjöf um fjölda erlendra sjóða og samstarfsáætlana, m.a. 7. rannsóknaáætlun ESB.


Byggðastofnun - Landskrifstofa Norðurslóðaáætlunar

Landsskrifstofur Norðurslóðaáætlunar ESB  (Regional Contact Point) eru í hverju þátttökulandi og er þeim ætlað að aðstoða við leit að samstarfsaðilum, annast kynningu áætlunarinnar og vera í nánu samstarfi við þátttakendur í verkefnum. 

Byggðastofnun gegnir hlutverki landsskrifstofu áætlunarinnar hér á landi. Tengiliður er Þórarinn V. Sólmundarson.


Upplýsingaþjónusta Menningaráætlunar Evrópusambandsins

Upplýsingaþjónustan hefur umsjón með menningaráætlun ESB sem er ætlað að ýta undir menningarsamskipti Evrópubúa og útbreiðslu evrópskrar menningar. Áætlunin nær til allra listgreina, menningararfleifðar og menningarsögu.

Nánari upplýsingar hjá Upplýsingaþjónustu menningaráætlunar 


MEDIA upplýsingaþjónusta

MEDIA upplýsingaþjónustan hefur umsjón með MEDIA, kvikmyndaáætlun ESB sem styður verkefni og fyrirtæki í hljóðmyndræna geiranum í Evrópu.

Nánari upplýsingar hjá MEDIA 


Skrifstofa Evrópu Unga Fólksins
Skrifstofa Evrópu Unga Fólksins er að Laugavegi 170 í Reykjavík. Þar geta umsækjendur fengið nánari upplýsingar um ungmennaáætlunina og rætt við starfsmenn um hugmyndir sínar að verkefnum. 

Starfsmenn EUF veita einnig ráðleggingar og leiðbeiningar um það hvernig beri að fylla út umsóknir og annað sem snýr að umsóknarferlinu.

Skrifstofa Evrópu Unga Fólksins

  • Rannsóknasjóður 2008
    Starfsmenn Háskóla Íslands komu vel út úr úthlutun Rannsóknasjóðs 2008
  • Rannsóknasjóður 2007
    36 vísindamenn Háskóla Íslands hlutu styrki til nýrra verkefna og 78 til framhaldsverkefna við úthlutun 2007.
  • Rannsóknasjóður 2006
    Góður árangur Háskóla Íslands við úthlutun úr Rannsóknasjóði 2006